You are currently browsing the daily archive for október 10th, 2006.
Vínteymisfundur í höfuðstöðvunum síðastliðinn sunnudag.
Smökkuð voru 18 vín, þar af 10 sem við höfðum líka sent í business class vínsmökkun Flugleiða. Framleiðendurnir voru alls fjórir. Tvo flytjum við inn nú þegar, San Michele Appiano á Ítalíu og Artadi á Spáni. Sandhofer í Austurríki hef ég verið að smakka undanfarna 6 mánuði en Chateau de Montfaucon í Rhone í Frakklandi þekkt ég ekkert áður heldur höfðu þau samband með tölvupósti og sendu síðar sýnishorn þar sem mér leist vel á framleiðandann.
Hópurinn á vínteymisfundi hefur aldrei verið stærri, 10 smakkarar. Alltaf gaman en þessi fundur var sérstaklega góður.
Þetta var virkilega skemmtilegt og vínin voru yfir höfuð til fyrirmyndar. Upp úr stóðu líklegast Cabernet Sauvignon 2002 og Blaufrankisch 2004 frá Sandhofer, Pinot Nero 2004 frá San Michele Appiano og Cotes du Rhone Baron Louis 2003 frá Chateau du Montfaucon. Montefaucon línan var reyndar öll ótrúlega skemmtileg, t.d. hið venjulega Cotes du Rhone og hvítvínin tvö, ekki síst 100% Viognier.







Nýlegt spjall