You are currently browsing the daily archive for október 15th, 2006.
Bestu vín Ítalíu fá 3 glös, TRE BICCHIERI, á hverju ári í Gambero Rosso. Þegar framleiðandi hefur fengið alls 10 slíkar viðurkenningar fær hann eina stjörnu í hattinn, 2 stjörnur þegar hann nær 20 o.s.frv.
Aðeins tveir framleiðendur á Ítalíu hafa fengið 3 glösin eftirsóttu alls 30 sinnum.
Fyrstur var Gaja.
Annar var La Spinetta.
Það náðist núna í nýjasta Gambero Rosso fyrir árið 2007.
Moscato d’Asti 2005 og Barbera Ca di Pian 2003 frá La Spinetta fást í Kringlunni og Heiðrúnu. Barbera Superiore 2003 og Barolo 2001 er hægt að sérpanta hjá okkur.
Neal Martin lýsir því skemmtilega á wine-journal.com hvernig hann kynntist víni frá La Spinetta í fyrsta sinn auk þess sem hann fjallar um framleiðandann og gefur vínum hans einkunnir.







Nýlegt spjall