You are currently browsing the daily archive for október 25th, 2006.
Rósavínsneysla í Bretlandi er 5-7% af heildarléttvínsneyslu skv. þessari grein í Beveragedaily.com.
Fyrir nokkrum árum var hún aðeins 1%.
Rósavín eru ekki bara í tísku heldur er fólk að átta sig á því hversu miklu betri rósavín eru miðað við gutlið sem það var vant að drekka þegar rósavín voru vinsæl hér í gamla daga.
Ég get ekki sagt að ég sé beinlínis að moka út rósavínum þessa dagana en það getur ekki verið tilviljun þegar tveir góðir veitingastaðir hér í borg hringja í mig að fyrra bragði og spyrjast sérstaklega fyrir um rósavín. Annar þeirra, Vox, býður gestum sínum upp á rósavínin Artazuri og Mourgues du Gres Les Capitelles.
Rósavín eru ekki bara sumarvín frekar en hvítvín. Þau eru jú gleðivín, björt, fersk og hressandi. En hver slær hendinni á móti slíkum eiginleikum í skammdeginu?
Rósavín eru sömuleiðis fjölhæf matarvín, feta stíginn milli hvítra og rauðra og geta gengið í hlutverk þeirra beggja þegar svo ber við.







Nýlegt spjall