Sikileyska víngerðin Firriato hefur gert það gott í ítölsku pressunni undanfarin ár en fáir hafa tekið jafn miklu ástfóstri við eyjaskeggjana og víntímaritið Il Mio Vino (nema ef vera kynni Luca Maroni).
Í annað sinn á þremur árum fær Firriato þessa viðurkenningu hjá tímaritinu og rauðvínið Ribeca var valið besta rauðvínið í sínum flokki (ítölsk rauðvín sem kosta á milli 15-30 Evrur).
Ég hef smakkað Ribeca en ekki ennþá flutt það inn, það gæti þó alveg gerst. Ribeca kostar það svipað og Harmonium sem er í uppáhaldi hjá mörgum gestum á La Primavera í Austurstræti. Santagostino vínin, rauða og hvíta, fást hins vegar í Vínbúðunum Heiðrúnu og Kringlunni á 1.790 kr.






