.

Ég hef ekki farið eins mikið á Wine Spectator vefsíðuna eftir að þeir byrjuðu að rukka fyrir aðganginn en ein skemmtileg nýjung á síðunni kostar ekki neitt – vídeó af smökkunum, víngerð og fleiru.

Í vídeói sem kallast “Time to Shine in Southern France” sýnir Kim Marcus fram á hversu góð víngerð er orðin í Languedoc héraðinu og smakkar þrjú vín , eitt rautt, eitt hvítt og eitt rósa, því til staðfestingar.

Rauðvínsfulltrúann könnumst við vel við, þar er okkar vín Chateau du Flaugergues 2003 á ferðinni en tímaritið gaf því 92 stig fyrir þann árgang. Greinlega verðugur fulltrúi héraðsins að þeirra mati.

Horfðu á Marcus smakka og lýsa víninu í vídeóinu.

Hann bendir m.a. á hversu vínið er fágað frekar en kröftugt.

Það á enn frekar við um 2004 árganginn sem er ekki eins sætur í nefi enda ekki eins heitt sumarið 2004 heldur vínið að sumu leyti jafnara. Litur og stíll minnir næstum á Pinot Noir frá Búrgúnd. Vínið er enn að opna sig og spái ég því að það gefa meira af sér í sumar heldur en nú. Það verður forvitnilegt að sjá hvað Wine Spectator segir um þennan árgang en ég spái því að hann nái ekki að jafna dóma þeirra um 2003 heldur hljóti svona 90 stig.