Eina sönnunin sem Bret Stetka þarf fyrir því að vín sé hollt, sérstaklega rauðvín, er sú staðreynd að Frakkar og Ítalir hafa sturtað í sig feitum og óhollum mat í gegnum aldirnar en lifa samt lengur en Bandaríkjamenn.
Hlýtur að vera vínið.
Hann rifjar upp í þessari grein nokkra helstu áfanga sem vísindamenna hafa náð í því að sanna hollustu víns og gerir nánari grein fyrir niðurstöðunum á nokkuð skondinn hátt.
Eins og t.d. að það þurfi að drekka um 8.000 flöskur af rauðvíni á dag til að upplifa svipaðan skammt og mýsnar sem eru notaðar í tilraununum.
Skál fyrir því.






