Loksins, verð ég að segja. Loksins eru vín frá okkur fáanleg á Vínbarnum.
Það hefur vakið lengi fyrir að setjast niður með Gunna Palla, eiganda Vínbarnsins, og ræða möguleikann á samstarfi en einhverra hluta vegna hafði ég ekki tekið af skarið og komið á fundi þar til núna í síðustu viku. Ástæðan er líklegast einfaldlega sú að ég er ekki þessi sölumaður.
Gunni Palli tók mér fádæma vel. Það kom mér á óvart hversu mörg vínanna hann hafði þegar prófað hérlendis eða erlendis. Hann er sannur vínkall hann Gunni Palli.
Eitt það skemmtilegasta við Vínbarinn, eins og alla góða vínbari, er að þar eru engir tveir dagar eins. Það er alltaf eitthvað nýtt í boði, stundum bara ein flaska af hinu eða þessu, jafnvel einhverju sem Gunni Palli hefur sjálfur keypt á ferðalagi í útlöndum, eða einhverju öldruðu eðalvíni. Ekki minnkar úrvalið við tilkomu Enomatic vélarinnar. Vínbarir eru einhver besta og skemmtilegast leið sem til er til þess að kynnast vínum og prófa sig áfram. Ekki velja alltaf það sem þú þekkir!
Gunni Palli valdi 13 ólíkar tegundir frá okkur. Af þeim eru 5 vín sem eingöngu fást á Vínbarnum sem stendur.
Ég mæli sérstaklega með glasi af hinu fágæta, þýska sætvíni Auslese 2002 frá Weingut Keller sem er í miklu uppáhaldi hjá þýsku vínútgáfunni Gault Milleau — og mér. Nú eða lögg af ástralska ofurboltanum Hillside Shiraz 2002 frá Kay Brothers sem fær 95 stig hjá Robert Parker
Þetta eru vínin 13:
Hvítvín:
Falesco Vitiano Bianco 2005
Umani Ronchi Casal di Serra 2005
Appiano Pinot Bianco 2004
Rauðvín:
Falesco Vitiano Rosso 2005
Umani Ronchi Jorio 2001
Fontodi Chianti Classico 2003
Sandrone Dolcetto d’Alba 2004
Casa de la Ermita 2001
Laderas de El Seque 2005
Artadi Vinas de Gain 2003
d’Arenberg The Custodian 2002
Kay Brothers Hillside Shiraz 2002
Sætvín:
Weingut Keller Auslese 2002






