Ég tók boði Morgunblaðsins að verða matgæðingur vikunnar í síðustu viku og gefa þrjár uppskriftir.
Tvær þeirra hafði ég gefið áður hér á blogginu, grilluðu pizzuna og Amedei súkkulaðismákökurnar, en þá þriðju ætla ég að láta vaða núna. Ég tók hana á sínum tíma upp úr bókinni hans Mario Batali Simple Italian Food.
Eplasalat með parmaskinku:
Salat (stökkt og bragðmikið – veljið það sem lítur bestu út hverju sinni)
2 bréf af parmaskinku (eða San Daniele)
3 epli af sitt hvorri tegundinni
1 msk. birkifræ
3 msk. jómfrúarólífuolía [Rietine fæst í Kokku og Fontodi í Fylgifiskum]
1 msk. rauðvínsedik
Salt og pipar
6 ristaðar sneiðar af hvítu, ítölsku brauði.
Eplin skorin niður í þunna strimla og sett í skál. Birkifræjum [úps, sagði óvart "sesamfræ" í Mbl - en það er örugglega alveg eins gott], ólífuolíu, ediki, salati, salti og pipar bætt út í og hrært varlega með sleif (eða hrist nokkrum sinnum) þar til það blandast saman. Ristað brauðið er sett á platta, parmaskinkunni raðað yfir og síðan hellt úr skálinni yfir allt saman. Borið fram.
Ég mælti með hinu ofurljúfa Grecante 2005 frá Arnaldo Caprai með þessum ferska og sumarlega rétti.






