Kúbanskir vindlar, tómatstilkar, gufubað, pappír, þurrkaðir ávextir, sýra?
Blautir járnbrautarteinar?
Já, við erum að tala um súkkulaði. 6 ólík Amedei súkkulaði sem öll koma frá sitthvoru landinu og undir yfirskriftinni “I Cru”.
Ég gleymi því ekki þegar við Rakel smökkuðum “I Cru” fyrst, þá áttuðum við okkur á því að það að smakka og upplifa súkkulaði gat kallað fram svipaða upplifun, vangaveltur og lýsingar eins og að smakka vín. Meira að segja nafnið “I Cru” minnir á vín, sbr. premier cru og grand cru á Frakklandi. Við þefuðum af þeim, bitum í, smjöttuðum, fundum bragðið og eftirbragðið, töluðum um sýru og tannín, ferska og þurrkaða ávexti og ýmsa aðra eiginleika og heilluðumst að því hveru ólík 6 mismunandi tegundir af 70% súkkulaði frá sama framleiðanda gátu verið.
Við átum okkur í gegnum alla línuna í gærkveldi og þá fattaði ég að það var því kominn tími á að ég gerði netta smakkskýrslu um tegundirnar 6 sem ganga undir Nafninu “I Cru”.
Venezuela – Mjög gott jafnvægi í þessu súkkulaði, þ.e.a.s. enginn einn þáttur sem stendur út úr og gerir það óvenjulegt heldur er þetta frekar svona sitt lítið af hverju.
Granada – Fremur mildur ávöxtur undirstrikaður af ferskum sítrus. Áberandi rjómamjúkt.
Madagascar – Okkur hefur fundist þetta ávaxtaríkast af tegundunum sex, þurrkaðir ávextir í bland við ferska. Tvímælalaust eitt mest spennandi súkkulaðið í hópnum að okkar mati. Flókið.
Jamaica – Ásamt Trinidad er þetta sérstakasta súkkulaðið. Dimmt og lágtónað með blæ sem minnir á gufubað eða blautan við. Hrátt og svolítið villt.
Trinidad – Tóbak! Þegar maður finnur tóbaksilminn gleymir maður öllu öðru. Þetta eru kúbuvindlar í súkkulaðilíki.
Ecuador – Það súkkulaði sem hefur sterkastan kakókarakter, bæði hvað ilm og bragð varðar. Bragðmikið og stórt.
I Cru fást í gjafaösku hjá Kokku á Laugaveginum (12 stykki í pakka, tvö frá hverju landi) og í stykkjavís á kaffihúsum Kaffitárs.







No comments yet
Comments feed for this article