Ekki fyrir löngu síðan (lestu bloggið) lagði ég það til að Montepulciano d’Abruzzo frá Umani Ronchi ætti að breyta um miða svo það yrði skiljanlegra, þekkjanlegra og auðseljanlegra. Ég lýsti því yfir að ég myndi stinga upp á þessu við framleiðandann þegar ég hitti hann á Vinitaly vínsýningunni.
Kom í ljós að Umani Ronchi var skrefi á undan mér. Þeir voru þegar búnir að endurhanna miðann á þetta vín og tvö önnur í sama verðflokki að auki, með sama hætti.
Hvað finnst þér um breytinguna?
Fyrir Eftir


Montepulciano vínið okkar er lengst til hægri á báðum myndum (ath. á myndunum er vínið lengst til vinstri ekki það sama en af svipuðum toga hvað verð og stöðu varðar).







Þetta er mun flottara. Ekkert of flashy en grípur augað.
Þetta er svona keyptu mig !
Sammála Hildigunni. Mér finnst þetta flottir miðar. Þessir gömlu voru frekar óspennandi.
Gallinn við gömlu er líka hversu illa grípandi þeir eru. Þessir nýju eru amk. grípandi.
Mér finnst þetta voða klént.
meðan innihaldið er janfgott þa er þetta fint
Góður – já, þetta er nákvæmlega sama innihald.
Það er alltaf spurning hvort svona miðatrix senda réttu skilaboðin? Einhverjir muna kannski frasann frá Bjögga Halldórs, en hann á að hafa sagt við ungan söngvara í sjóvi sem kom í nýjum jakkafötum: “Ný jakkaföt?”, “sama röddin.” Það var að sjálfsögðu til að gera lítið úr kappanum.
Annars leita ég bara að miðunum frá Vín og Matur. Svo miði framleiðandans er aukaatriði.
Mun flottari nýju miðarnir. Virka öðruvísi en aðrir miða frá öðrum, eins og upphrópunarmerki, og geta því kallað á í hillim.