You are currently browsing the daily archive for maí 7th, 2007.
Þegar Steingrímur fjallaði um 2004 árganginn af Vitiano hvítvíninu fyrir nokkru gaf hann því 19 stig af 20 mögulegum og afskaplega góða lýsingu.
Sama er upp á teningnum núna. a
Honum finnst 2005 árgangurinn af þessu víni alveg jafn góður ef marka má lýsingu hans í Morgunblaðinu síðasta föstudag.
Steingrímur hefur skipt út 20 stiga kerfinu og tekið upp 100 stiga kerfið að hætti Parkers, Wine Spectator og fleiri.
“FALESCO VITIANO 2005 er einfaldlega yndislegt hvítvín með grænum og gulum perum í nefinu, sætum sítrus og hvítum blómum. Ferskt en með þyngd sem viktar á móti matnum. 1.590 kr. 89/100.” (Morgunblaðið 4.5.2007, Steingrímur)
Þess má geta að vínið er á tilboði í Vínbúðunum í maí á 1.490 kr.
Það er gaman þegar að bloggarar taka upp á því að fjalla um eitthvað af vínunum okkar.
Jón Lárus bloggar um rauðvínið The Stump Jump frá d’Arenberg og er ánægður með það.







Nýlegt spjall