You are currently browsing the daily archive for maí 9th, 2007.

Það rignir inn tölvupóstum frá vínframleiðendum.

Aðallega frá Ítalíu en líka töluvert frá Frakklandi. Þeir eru að leita eftir samstarfi og bjóða mér vínin sín til sölu.

Það eru eflaust einhverjir sauðir í þessum hópi en mest allt eru þetta fínir framleiðendur með góða vöru. Það er bara svo mikið til af slíkum framleiðendum og í augnablikinu er ég með hendur frekar fullar. Ég hef samt svarað öllum þessum póstum hingað til, skoðað verðlistann ef hann er sendur með og vefsíðuna þeirra ef hún er til, en undanfarið hafa þeir verið svo margir að það bara gengur ekki lengur nema í einstaka tilfellum sem líta betur út en önnur — t.d. þegar heimsþekktir framleiðendur hafa samband.

Í morgun barst mér einn slíkur. Hann kemur frá rómuðum framleiðanda á Ítalíu sem hefur fengist hér á Íslandi í all mörg ár en einhverra hluta vegna leitar hann að nýjum samstarfsaðila.

Ég er líka sérstaklega veikur fyrir öllu svona eins og kom fram í tölvupóstinum hans: “You have the finest portfolio of wines from Italy out of all the importers in Iceland”.

Meira svona takk.

Dagatal

maí 2007
M Þ M F F L S
« apr   jún »
 123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031  

Flickr Myndir

Stoltir víngerðarmenn

Antoniettu og Alessandro finnst Beljan ótrúlega fyndin

Af þessum vínvið ertu komin

Finnið Beljuna!

Beðið eftir áfyllingu

Þessi keypti bretti af Beljunni

More Photos

a