Við höfum verið dugleg að koma sýnishornum til Gestgjafans. Það virkar þannir að við gefum þeim eina flösku af hverri tegund sem fjalla á um. Af henni er tekin mynd og hún síðan smökkuð og dæmd af þeim góðu mæðginum Dominique og Eymari.
Í nýjasta Gestgjafanum fjalla þau um tvö ítölsk rauðvín frá okkur, Vitiano 2005 frá Falesco og Pinot Nero 2004 frá San Michele Appiano (St. Michael Eppan á þýsku á miðanum því víngerðin er svo norðarlega á Ítalíu).
Svona lítur það út:
“FALESCO VITIANO 2005 – 4 glös
Enn og aftur erum við með vín frá Falesco í Umbria á smökkunarborði okkar og er það alltaf sönn ánægja. Það er alveg á hreinu að Falesco er með skemmtilegri framleiðendum Ítalíu því að allt sem við höfum smakkað þaðan er einstaklega vel gert – og á góðu verði. Hér er blanda af sangiovese, merlot og cabernet sauvignon sem skilar sér í ilmríku víni með ilmi af kirsuberjum, blómum, súkkulaði og lakkrís. Þetta er bragðmikið vín og vottar fyrir kirsuberjum, tóbaki, svörtu súkkulaði og kryddi. Langt og gott eftirbragð en víninu þarf að umhella til að það njóti sín í botn. Prófið það með steiktu kjöti, ofnsteiktu lamba- eða nautakjöti eða pörusteik. Verð 1.590 kr. – Góð kaup.
Okkar álit: Vín sem kallar á mat, frá virtum framleiðanda – mjög ungt enn en lofar jafngóðu og 2004 sem var afar góður árgangur. Þarf að umhella.
ST. MICHAEL EPPAN [San Michele Appiano] PINOT NERO 2004 – 3 1/2 glas
Á Norður-Ítalíu er að finna svæði, Alto Adige, sem er enn mikið undir týrólskum áhrifum þar sem þýska og ítalska eru notaðar jöfnum höndum – til dæmis á flöskumiðunum. Þar er að finna ágæta vínrækt og er San Michele Appiano (eða Skt. Michael Eppan!) ein af þeim virtustu. Hérna erum við með pinot nero frá þeim sem er enn ungt að árum. Það er svolítið lokað í byrjun en opnast hægt og rólega á jarðarber, milt krydd, súkkulaði og skógarbotn. Eins og áður sagði er vínið enn svolítið ungt og kemur það best fram á tungunni. Frekar skörp tannín fela ávöxtinn svoítið en þar á bak við er samt að finna rauðan ávöxt, krydd og sveppi. Þetta er vín sem þarf greinilega að láta liggja í nokkur ár en þeir sem eru óþolinmóðir geta umhellt því. Hafið það með önd eða eðalkjúklingi með trufflum! Verð 1.890 kr. – Góð kaup
Okkar álit: Fíngert og ekta pinot nero frá mjög vönduðum framleiðanda . Þarf annaðhvort að umhella því eða láta það liggja en þetta er frábært vín með góðum, vönduðum kjötréttum.” (Gestgjafinn 5. tbl. 2007)







No comments yet
Comments feed for this article