You are currently browsing the daily archive for maí 27th, 2007.
Fjallað var um Búrgúndarvínin okkar í Viðskiptablaðinu síðasta föstudag. Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem það er gert því í vikunni þar á undan var vísað í bloggið okkar um Tappagjald á veitingastöðum.
Af Búrgúndarvínum er það að frétta að brettið er um það bil að leggja af stað frá Frakklandi. Það varð fyrir smávægilegri seinkun því að annar framleiðandinn ákvað að bregða sér til Bandaríkjanna og þar náðist ekki í hann.
Jæja, við erum svo sem ekkert að stressa okkur en maður er farinn að hlakka svolítið til.
Brettið verður að sjálfsögðu flutt í hitastýrðum flutningum alla leið frá framleiðandanum í Frakklandi til Íslands. Þetta eru dýr og viðkvæm vín svo maður tekur enga sénsa á því að þau gætu soðnað einhvers staðar í hitanum á leiðinni.
Sömu sögu er að segja af gámi sem við erum að taka frá Ítalíu frá 5 ólíkum framleiðendum. Hann verður hitastýrður.







Nýlegt spjall