Alessandro og Antonietta, eigendur Castello di Querceto í Chianti Classico í Toskana, koma í heimsókn til Íslands í lok júní.
Við blásum til vínsmökkunar með þeim ljúfu hjónum á La Primavera laugardaginn 30. júní kl. 14.00.
8 tegundir verða smakkaðar og verða vínin sem fyrr borin fram með léttu nasli að hætti Leifs og Jónínu á La Primavera — í anda Toskana héraðsins.
Þáttökugjald er 3.500 kr.
Sendu okkur línu á vinogmatur@vinogmatur.is til að láta taka frá sæti.
Hlökkum til að sjá þig!






