You are currently browsing the daily archive for júlí 12th, 2007.

Það standa yfir sumarvíndagar í Vínbúðunum.

Við eigum 5 vín þar sem eru á tilboði fram yfir verslunarmannahelgi.

Casal di Serra (1.490 kr. í stað 1.590 kr.) er vinsælt hvítvín frá Umani Ronchi í Le Marche héraði á Ítalíu. Það er eingöngu framleitt úr Verdicchio þrúgunni og hefur verið eitt vinsælasta ítalska hvítvínið í Vínbúðunum síðustu ár.

The Footbolt (1.690 kr. í stað 1.790) er bragðmikið rauðvín frá d’Arenberg í McLaren Vale í S-Ástralíu og er hreint Shiraz. Við völdum það fyrsta keðjuvínið okkar.

Lou Maset (1.490 kr. í stað 1.600 kr.) er karaktermikið rauðvín frá Domaine d’Aupilhac í Languedoc héraði Frakklands. Það er samsett úr nokkrum þrúgum og er bæði lífrænt og bíódýnamískt.

Grecante (1.690 kr. í stað 1.790 kr.) er ofurljúft hvítvín frá Arnaldo Caprai í Umbria héraði á ítalíu. Það heitir í höfuðið á þrúgunni sem það er úr, þ.e.a.s “Grechetto” og er mikið og gott matarvín, þykkt og aðlaðandi.

Chateau de Flaugergues (1.650 kr. í stað 1.750 kr.) er vel gert og heillandi rauðvín frá samnefndum framleiðanda í Languedoc héraði Frakklands sem hitti í mark þegar það kom fyrst á markað fyrir ári síðan. Þetta er svokallað GSM vín, þ.e.a.s. það er framleitt úr þrúgunum Grenache, Syrah og Mourvédre.

Þessi vín eru öll góð kaup. Mikið fyrir lítið.

Nú á enn betra verði.

Dagatal

júlí 2007
M Þ M F F L S
« jún   ágú »
 1
2345678
9101112131415
16171819202122
23242526272829
3031  

Flickr Myndir

Stoltir víngerðarmenn

Antoniettu og Alessandro finnst Beljan ótrúlega fyndin

Af þessum vínvið ertu komin

Finnið Beljuna!

Beðið eftir áfyllingu

Þessi keypti bretti af Beljunni

More Photos

a