You are currently browsing the daily archive for júlí 16th, 2007.
Undir fyrirsögninni “Hvítir sumarsmellir” í Morgunblaðinu fjallar Steingrímur um nokkur góð hvítvín sem honum finnst sérstaklega sumarleg.
Hann byrjar á Frizzando 2006 frá Sandhofer, okkar manni í Austurríki.
“Það gerist ekki mikið sumarlegra” eins og Steingrímur segir:
“FRIZZANDO D’VILLA VINEA 2006 frá Sandhofer er einn af sumarsmellunum 2007. Þetta er tiltölulega lítið vínhús (15 hektarar) í Neusiedlersee sem hefur getið sér gott orð í Austurríki og er ánægjulegt að sjá með fulltrúa í vínbúðunum hér. Frizzando er vín sem freyðir en er samt ekki alveg freyðivín. Fersk vínber og gul þroskuð epli og gular perur í fersku, örlítið sætu og aðallega yndislegu léttfreyðandi víni. Austurríkismenn kalla vín sem þessi Perlwein, þau perla en freyða ekki. Það gerist ekki mikið sumarlegra.
1.790 kr. 88/100” (Mbl. 13.7.2007)
Ég mæli með þessu víni beint úr ísskápnum, fyrir mat, með mat, eftir mat.
Undir mat, ofan á mat, út á mat.
Endurmat, greiðslumat, fasteignamat.
Eða bara eitt og sér.
Annars var ég hálfgerður klaufi að auglýsa vínið alls staðar á 1.790 kr. því það kostar víst óvart 1.850 kr. Það mætti reyna að biðja um 60 krónur endurgreitt við kassann í Vínbúðunum - nú eða bíða þangað til ég lækka vínið í rétt verð sem verður á næstu vikum.







Nýlegt spjall