You are currently browsing the daily archive for júlí 19th, 2007.
Sé miðað við líterinn þá er Richebourg 2004 frá Domaine Grivot dýrasta flaska sem við höfum flutt inn.
12 flöskur af þessu víni komu til landsins í vikunni eða svo stóð til en þegar ég opnaði kassann voru þær bara 11 og var augljóslega búið að rífa hann upp og setja annars konar límband heldur en það sem var sett á kassann af framleiðandanum. Eini kassinn sem var tvílímdur með þessum hætti.
Greinilega horfið á leiðinni til Íslands og greinilegt að sá sem stóð að verki vissi hverju var eftir að falast því þetta var snyrtilega gert og flaskan sú dýrasta í sendingunni. Hefði hann tekið allan kassann hefði þetta verið augljósara og hugsanlega komist upp.
Jæja, svona er nú það. Ég lét allavegana framleiðandann vita og flutningsaðilann.
Kannski bæta tryggingarnar þetta en ég sé nú næstum meira eftir flöskunni sem nú hlýtur þau örlög að lenda ofaní kokinu á bíræfnum ræningja.







Nýlegt spjall