You are currently browsing the daily archive for júlí 31st, 2007.

Tvær bandarískar bíómyndir eru í bígerð þar sem byggt er á sama efni, nefnilega Paríssmökkuninni 1976 þar sem vín frá Kalíforníu höfðu betur í blindsmakki gegn vínum frá Frakklandi (lestu þetta blogg þar sem ég fjalla um endurtekningu smökkunarinnar 2006).

Þetta kemur fram á vef Dr. Vino

Önnur, The Judgment of Paris, er svokölluð “official” útgáfa í samræmi við óskir breska smakkarans Steven Spurrier sem tók þátt í 1976 atburðinum. Þar hafa verið nefndir ekki síðri leikarar en Hugh Grant eða Jude Law í hlutverk Spurriers.

Hin er sett þessari til höfuðs (eða öfugt) og heitir Bottle Shock. Þar mun hinn stórgóði Alan Rickman fara með hlutverk Spurriers.

Það verður fróðlegt að sjá hvernig þessar myndir ætla að ná dramatískri spennu út úr vínsmakki en samkvæmt San Francisco Chronicle er að finna m.a. þessa mögnuðu setningu í handriti síðari myndarinnar:

“I’d leave my wife in the gutter for another taste of that voluptuous noble fluid with subtle hints of magnificent licorice and cooked ripe black currant.”

Þarna er alvörukrítík á ferðinni, ekkert létt hjal.

Dagatal

júlí 2007
M Þ M F F L S
« jún   ágú »
 1
2345678
9101112131415
16171819202122
23242526272829
3031  

Flickr Myndir

Stoltir víngerðarmenn

Antoniettu og Alessandro finnst Beljan ótrúlega fyndin

Af þessum vínvið ertu komin

Finnið Beljuna!

Beðið eftir áfyllingu

Þessi keypti bretti af Beljunni

More Photos

a