Vonandi styttist í að Chester Osborne, eigandi og víngerðarmaður hjá d’Arenberg, mæti til Íslands og haldi vínsmökkun með okkur en þangað til verður að láta sér nægja að horfa á vídeó af kallinum á YouTube.
Hér smakkar hann sitt rómaðasta vín The Dead Arm 2005:
Það er ástæða til að endurtaka að þetta er í alvörunni ekki Egill Helgason með ástralskan hreim í Hawaii skyrtu.
Við eigum eitthvað til af The Dead Arm 2004 en 2005 árgangur kemur síðar í vetur. Vínið fæst eingöngu með því að sérpanta í gegnum Vínbúðirnar eða þú sendir okkur tölvupóst á vinogmatur@vinogmatur.is og við önnumst um sérpöntunarferlið fyrir þig.
Smelltu hér til að skoða vídeóbloggið hans Chester um The Dead Arm 2005 á YouTube. Einnig má sjá hann vídeóblogga um hin tvö stóryrki víngerðarinnar; The Ironstone Pressings 2005 (smelltu hér) og The Coppermine Road 2005 (smelltu hér).






