Querceto Chianti fær 86 stig í Mogganum um helgina.
“[U]ngur, matvænn Chianti” segir Steingrímur.
“Querceto Chianti 2005 er einfaldur og ódýr Chianti frá hinum stórgóða framleiðanda Castello di Querceto sem er þekktast fyrir Chianti Classico vín sín. Þrúgurnar í þetta vín koma þó ekki nema að hluta frá ekrum fyrirtækisins af ekrum þess í kringum Greve og hlýtur því hina einfaldari skilgreiningu “Chianti” án viðbótarinnar “Classico”. Þetta er ungur, matvænn Chianti með kirsuberjum, smá glussa og kryddi í nefi. Ágætlega sýrumikið og mjúkt í munni. 1.390 krónur. 86/100.” (Mbl.)
Vitlaust mynd birtist í greininni, í staðinn fyrir Chianti er mynd af Chianti Classico víni framleiðandans Castello di Querceto.
Querceto Chianti 2005 kostar 1.390 kr. og fæst í Heiðrúnu og Kringlunni.






