Bloggarinn verður að skenkja í glös við tvö tækifæri í dag.
Hið fyrra er við opnun myndlistarsýningar Kristínar Gunnlaugsdóttur í Turpentine galleríinu í Ingólfsstræti þar sem boðið verður upp á hið skemmtilega Frizzando frá Sandhofer.
Það síðara verður í hléi á tónleikum í Neskirkju undir yfirskriftinni “Vín og ljúfir tónar”. Bloggarinn mun ekki syngja við þetta tilefni. Það munu hins vegar Vernaccia di San Gimignano, Stump Jump, Belvedere og Chateau de Flaugergues gera.







No comments yet
Comments feed for this article