Eins og vanalega fengum við að tilnefna nokkur vín á sérstakan hátíðarvínlista Vínbúðanna sem gildir til áramóta.
Við tilnefndum 5 reynsluvín og fást þau þá ekki bara í Kringlunni og Heiðrúnu næstu vikurnar heldur líka í Smáralind, Eiðistorgi, Skeifunni, Hafnarfirði og á Akureyri.
Með svolitlum afslætti meira að segja.
Þetta eru vínin, tilboðsverðin og í sviga er matarflokkurinn sem þau þykja henta best með.
Castello di Querceto Chianti Classico Riserva – 2.350 kr. (m. lamba- og nautakjöti)
Arnaldo Caprai Belvedere – 1.590 kr. (m. ljósu kjöti)
Arnaldo Caprai Grecante – 1.690 kr. (m. fiski)
d’Arenberg The Stump Jump rautt – 1.490 kr. (m. ljósu kjöti)
d’Arenberg The Stump Jump hvítt – 1.390 kr. (m. fiski)






