Límmiðinn byrjaður að rúlla

Nýi miðinn er kominn á flöskurnar. Tekur einhverjar vikur að ná dreifingu því enn eru miðalausar flöskur í hillum.

Við stilltum 6 nýjum hugmyndum upp og fengum góðar athugasemdir á blogginu og með tölvupósti. Lestu bloggið

Nr. 3 var valinn þótt asninn væri myndarlegur eins og margir bentu á. Asninn fær kannski annað hlutverk síðar í ímynd fyrirtækisins. Kannski verður hann tákn fyrir heimsendingarþjónustuna okkar þegar við byrjum að selja vín á netinu – “erum lengi á leiðinni en komum pottþétt”.

Nýi miðinn er “hreinn og snyrtilegur” eins og Hildigunnur benti réttilega á.

Við lækkuðum “m”-ið úr stóru í lítið.

Þá verður ekki aftur snúið.

Í bili amk.

Svona næstu 12.000 flöskur eða svo.

En ef nýi miðinn fer mikið í taugarnar á þér getur þú keypt ótæpilega af okkar vínum til að klára upplagið sem fyrst og þá lofa ég að gera öðruvísi miða næst.

1 ummæli

Filed under límmiðar

One Response to Límmiðinn byrjaður að rúlla

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s