Michelin útgáfan gaf út í dag hina árlegu bók sína um veitingastaði á Bretlandi og Írlandi.
110 veitingastaðir fá 1 stjörnu, þar af 15 nýir.
12 veitingastaðir fá 2 stjörnur og þrír fá fullt hús eða 3 stjörnur.
Smelltu hér til að lesa fréttatilkynningu frá Michelin um 2008 bókina (listinn yfir stjörnuveitingastaði byrjar á bls. 21).
Hef bara prófað tvo á þessum lista, Zafferano (lestu um heimsókn fyrri og síðari) og Club Gascon.
Ritstjórinn hefur hins vegar komið á Locanda Locatelli (lestu um heimsóknina).
London er hið mikla mekka matargerðar í dag en þó eftirbáti Tokyo að mati Michelin því engin borg fær fleiri stjörnur hjá útgáfunni, þótt fyrsta bókin um borgina hafi litið dagsins ljós aðeins nú nýlega.






