Ef þú værir þrúga, hvaða þrúga værir þú?
Allar hafa þær sinn karakter sem oft er lýst eins og um ljóslifandi persónu væri að ræða.
Á appellationamerica.com er að finna þessar stórskemmtilegu andlitsmyndir af ótrúlega mörgum þrúgum með tilheyrandi persónulýsingum af hverri.
Svo má spyrja, af hvaða þrúgu heillast þú mest?
Nú skil ég að minnsta kosti betur af hverju ég hef alltaf verið svona hrifinn af Sauvignon Blanc. Ég mun aldrei drekka neitt annað.







Rkatsiteli er flott, líka malbec og catawba :) Held samt að ég hafi aldrei smakkað þá fyrstu og síðustu, en myndirnar eru æði. Reyndar var erfitt að velja…
Já þetta eru ansi sniðugar myndir og textarnir eru ekki mikið síðri, bæði karakterlýsingin og fróðleiksmolarnir sem fylgja með.
Mér fannst viognier, carignan og sangiovese flottastar.
humm, reyndar var catawba ekki eins flott þegar ég kíkti á alla myndina, bara litla myndin. Hinar standa samt vel undir valinu.