Vín mánaðarins í Gestgjafanum: Chateau de Flaugergues 2006

.

Alltaf mikil ánægja á þessum bæ þegar að Gestgjafinn fjallar vel um vínin okkar.

Sérstaklega ef því fylgir heiðursnafnbót eins og sú sem Chateau de Flaugergues 2006 fær í nýjasta tölublaði, grillblaðinu:

— Vín mánaðarins —

Þeim Dominique og Eymari finnst Chateau de Flaugergues 2006 “þétt og ávataríkt vín” og “mjög góð kaup líka”, enda vínið ennþá á gamla verðinu 1.790 kr.

Chateau de Flaugergues 20064 glös Vín mánaðarins
Chateau de Flaugergues 2006 er fallur herragarður, skrautvilla sem staðsett er í úthverfum Montpellier og eru þrúgurnar í þessu víni hinar klassísku grenache, syrah og mourvedre, sem sagt GSM-blanda. Víninu hefur gengið vel í Vínbúðunum og skal það engan undra því að hér er hörkuvín á ferðinni. Opinn ilmur af nammikenndum ávexti grenache-þrúgunnar ásamt kryddi, tóbaki og sveit. Í munni er það virkilega ávaxtaríkt með mátulegt tannín og með fallega byggingu ásamt mikilli fyllingu. Jafnvægið er til fyrirmyndar og endar vínið á leðurkrydd- og kirsuberjatónum. Alltaf jafn ánægjulegt að smakka þetta vín. Drekkið það með léttri, jurtakryddaðri villibráð með berjameðlæti. Mjög góð kaup líka. Verð 1.790 kr.
Okkar álit: Þétt og ávaxtaríkt vín sem er vel gert og má alveg geyma í nokkra mánuði eða þá umhella því.” (Gestgjafinn 7. tbl. 2008)

Rita ummæli

Filed under dómar, flaugergues, Gestgjafinn

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s