24 stundir fengu ekki alls fyrir löngu nýjan liðsmann til þess að fjalla um vín og er það hún Alba á VOX. Alba er snjöll og metnaðarfull og gaman að sjá hana í þessu aukahlutverki á dagblaðinu.
Vikulega birtir hún Vín vikunnar og hefur til dæmis Stump Jump hvítvínið hlotið þá nafnbót (sjá blogg). Hún mælir líka með hinum og þessum vínum, eða bjór, með uppskriftum sem birtar eru í dagblaðinu.
Þessa vikuna velur hún Juveniles 2006 frá Torbreck sem Vín vikunnar.
“Torbreck Juveniles 2006 – Vín vikunnar
Aðlaðandi og opið í nefi, kröftugur ilmur af svörtum berjum, ferskum kryddjurtum, balsamik, leðri og steinefnum með vott af sætleika. Rúnnað í muni með áberandi skóbarberjasultu, hrásykri og tóbakslaufum. Þroskuð og feit tannín fylgja þéttri og tilkomumikilli fyllingu með safaríkum og heitum endi.
Veigamikið rauðvín sem tilvalið er að para með lamba- og nautkjöti, grillmat eða hafa eitt og sér. Tilbúið til neyslu strax en má geyma í 6-7 ár.
Þrúgur: 60% Grenache, 20% Shiraz og 20% Mourvedre. Land: Ástralía. Hérað: Sourth Australia – Barossa. 2.394 kr. ” (24 Stundir 9. ágúst 2008)