You are currently browsing the daily archive for september 8th, 2008.

Hinn framtakssami Dalvíkingur Júlíus Júlíusson er búinn að stofna matarsíðu áhugamannsins, eins og hann kallar hana.

Mjög forvitnileg síða með uppskriftum og fróðleik um mat, skrifað á persónulegan hátt. Byrjunin lofar góðu.

Þar má t.d. finna þessa uppskrift að Steinbít á Ritzpúða. Uppskriftin mun jafnframt birtast í bók sem kemur út fyrir jólin og nefnist “Meistarinn og áhugamaðurinn”.

Júlíus hvetur þá sem sýsla með matvöru að senda sér hráefni sem hann ætlar að elda upp úr og fjalla siðan um reynsluna á vefnum og hefur matarteymi sér til aðstoðar en bætir við: “Allt er þetta til gamans gert og af einskærum áhuga fyrir mat, drykk og eldhúsinu almennt. Skrifin verða með jákvæðum en gagnrýnum formerkjum.”

Aldrei að vita nema við gaukum að honum Amedei súkkulaði fyrir jólin og sjá hvað fæðist úr því.

En talandi um Amedei súkkulaði og uppskriftir, hér er uppskrift að Cantucci smákökum sem við birtum fyrir jólin 2006.

Dagatal

september 2008
M Þ M F F L S
« ágú   okt »
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
2930  

Flickr Myndir

Stoltir víngerðarmenn

Antoniettu og Alessandro finnst Beljan ótrúlega fyndin

Af þessum vínvið ertu komin

Finnið Beljuna!

Beðið eftir áfyllingu

Þessi keypti bretti af Beljunni

More Photos

a