… djók!

Undirritaður er ekki á leið í framboð.

Hann ætlar í framboð heldur að auka framboð, á ódýru víni.

Smjattpattar fyrirtækisins hafa hist undanfarið á leynilegum stöðum víðsvegar í höfuðborginni við að skoða og smakka á sýnishornum frá hinum og þessum framleiðendum, aðallega nýjum framleiðendum.

Að sjálfsögðu mætum við kreppunni með mátulega kæruleysislegu brosi á vör (svona eins og James Bond er með þegar hann mætir erkióvini sínum) þ.e.a.s. við vanmetum hana ekki en erum viss um að sigrast á henni.

Við erum heppin að vera með lítið fyrirtæki sem getur verið sveigjanlegt eftir þörfum. Við blásum því til sóknar því stundum er sókn besta vörnin.

Ný vín væntanleg í framboð á okkar lista eru flest ódýr en uppfylla öll okkar skilyrði um að vera góð og spennandi. Nokkur hafa fengist hér áður, t.d. Chianti frá Castello di Querceto og Montepulciano d’Abruzzo frá Umani Ronchi sem bæði hefja sölu 1. apríl og einnig nýtt og ódýrt Verdicchio hvítvín frá Umani Ronchi. Svo eru nýir framleiðendur frá Rhone í S-Frakklandi á sjóndeildarhringnum, Chateau de Montfaucon og stórskemmtileg “Little James” vín frá Domaine Saint Cosme. Ýmislegt fleira, freyðandi, s-ítalskt, jafnvel portúgalskt er á sjóndeildarhringnum.

Að ógleymdum kassavínsbeljum sem munu baula í fyrska skipti á okkar vegum með hækkandi sól, með rassinn upp í vindinn.

Munið svo að kjósa rétt.