You are currently browsing the daily archive for maí 11th, 2009.
Í hverjum mánuði fáum við sprúttsalar yfirlit frá ÁTVR yfir sölu með útreiknaðri framlegð fyrir hvert og eitt vín. Listinn skiptist í tvennt, yfir vöru sem er í kjarna annars vegar og hins vegar vöru sem er til reynslu.
Þarna sjáum við hvernig okkar vín koma út í samanburði við önnur og hvað vantar upp á til að reynsluvín komist í kjarna eða hversu mikil hætta er á því að kjarnavín dettur úr sölu. M.ö.o. mjög gagnlegur listi sem við getum skoðað í gegnum sérstakan birgjavef, sem og aðrar fréttir og skýrslur.
Í ný-útsendum lista yfir apríl mánuð síðastliðinn kom okkur skemmtilega á óvart að sjá að hástökkvari mánaðarins í flokki reynsluvína er Chianti frá Querceto sem tókst á einum mánuði að slengjast hálfa leiðina í kjarna.
Og fyrstu 10 dagana í maí virðist sem ekkert lát sé á vinsældum vínsins og það lítur vel út með framtíð þess sem stendur. Allavegana erum við nógu bjartsýn til að hafa bókað síðustu 600 flöskurnar sem framleiðandinn átti hjá sér og reiknum með að taka 600 til viðbótar í sömu sendinga af nýjum árgangi, 2008.
Sú sending kemur eftir mánuð eða svo. Hún ætti reyndar að vera ansi skemmtileg og óvenju myndarleg fyrir okkar litla fyrirtæki því þar með í för verður fyrsta kassavínið okkar, rautt og hvítt, en meira um það síðar.








Nýlegt spjall