You are currently browsing the daily archive for maí 17th, 2009.

Þessa dagana erum við með ermar uppbrettar að leggja lokahönd á fyrsta kassavínið sem við flytjum inn.

Vanalega leggjum við ekki okkar hendur eða lokahendur á hönnun eða útlit vöru sem við flytjum inn ef endanskilið er samvinnuverkefnið með austurríska vínframleiðandanum Hubert Sandhofer og myndlistarmanninum Kristínu Gunnlaugsdóttur sem lánaði myndefni á vínflöskurnar hans Huberts.

Kassavínshugmyndinni laust niður einhvern tímann á síðasta ári og með hjálp góðra vina var henni hrint í framkvæmd og hún fullmótuð. Vínið fundum við síðan hjá vinum okkar í Toscana, Alessandro og Antoniettu, eftir að hafa smakkað okkur í gegnum nokkra mögulega kandídata.

Ferlið var ekki alveg áfallalaust, fyrsta útgáfan hlaut ekki náð hjá yfirmönnum ÁTVR og var hafnað en það var kannski bara allt í lagi því við höldum að endurbætt útgáfa hafi jafnvel heppnast betur. Um ævintýri beljunnar verður fjallað meira síðar.

Á mánudaginn fer lokahönnun til vina okkar í Toskana sem prenta fyrir okkur og tappa víninu sínu á. Ef allt gengur upp verður beljan mætt í Vínbúðirnar 1. júlí.

Þær verða reyndar tvær þessar elskur, rauð og hvít.

Að sjálfsögðu komnar á Facebook eins og allar beljur sem vilja vera smart.

Hliðarnar á kassanum verða sýndar hér innan skamms þegar algjörlega, 100%, ekki nokkur vafi leikur á að hún sé fullkláruð og helst komin út úr prentsmiðjunni. 

En svona lítur toppurinn og botninn á rauðvínsbeljunni út:

 

Dagatal

maí 2009
M Þ M F F L S
« apr   jún »
 123
45678910
11121314151617
18192021222324
25262728293031

Flickr Myndir

Stoltir víngerðarmenn

Antoniettu og Alessandro finnst Beljan ótrúlega fyndin

Af þessum vínvið ertu komin

Finnið Beljuna!

Beðið eftir áfyllingu

Þessi keypti bretti af Beljunni

More Photos

a