You are currently browsing the daily archive for maí 24th, 2009.
Nýr hlekkur er kominn í Vínkeðjuna.
Við ákváðum að breyta til og færa bloggaranum Tómasi Meyer Lambrusco frá Lini frekar en “hefðbundnara” rauðvín eða hvítvín.
Fólk hefur ýmsar hugmyndir um Lambrusco, oft byggðar á sætum og djúskenndum minningum um eitthvað frekar einfalt og ómerkilegt og ekki beinlínis fjölhæft matarvín.
En “Meyerinn” lætur það ekki rugla sig í ríminu.
Hann drakk Lambrusco frá Lini í vorsólinni með steik, bearnaise sósu og kartöflubátum og fannst vínið smellpassa við.
Lestu hvað Tómasi Meyer finnst um Lambrusco frá Lini
Hér er svo stutt ræða: Í gengisruglinu sem gengur yfir landið hefur vínið hækkað í 1.980 kr. með lægri álagningu samt sem áður af okkar hálfu en gildir um flest okkar önnur vín. Miðað við stöðuna í dag er það því á góðu verði. Einhverjum gæti þótt það hár verðmiði fyrir ”bara Lambrusco” en það er einmitt málið, þetta er ekki bara Lambrusco heldur fyrst og fremst vín sem á að taka á þess eigin forsendum og sem slíkt er það frísklegt og matarvænt gleðivín.
Tómas skorar á Hall Magnússon til að halda áfram með keðjuna.







Nýlegt spjall