Nýr hlekkur er kominn í Vínkeðjuna.

Við ákváðum að breyta til og færa bloggaranum Tómasi Meyer Lambrusco frá Lini frekar en “hefðbundnara” rauðvín eða hvítvín.

Fólk hefur ýmsar hugmyndir um Lambrusco, oft byggðar á sætum og djúskenndum minningum um eitthvað frekar einfalt og ómerkilegt og ekki beinlínis fjölhæft matarvín.

En “Meyerinn” lætur það ekki rugla sig í ríminu.

Hann drakk Lambrusco frá Lini í vorsólinni með steik, bearnaise sósu og kartöflubátum og fannst vínið smellpassa við.

Lestu hvað Tómasi Meyer finnst um Lambrusco frá Lini

Hér er svo stutt ræða: Í gengisruglinu sem gengur yfir landið hefur vínið hækkað í 1.980 kr. með lægri álagningu samt sem áður af okkar hálfu en gildir um flest okkar önnur vín. Miðað við stöðuna í dag er það því á góðu verði. Einhverjum gæti þótt það hár verðmiði fyrir ”bara Lambrusco” en það er einmitt málið, þetta er ekki bara Lambrusco heldur fyrst og fremst vín sem á að taka á þess eigin forsendum og sem slíkt er það frísklegt og matarvænt gleðivín.

Tómas skorar á Hall Magnússon til að halda áfram með keðjuna.