You are currently browsing the daily archive for júní 8th, 2009.
Í þessum rétti dregur kjúklingakjötið í sig keiminn úr bragðmiklu hráefninu. Mikilvægt er að elda réttinn í góðu, eldföstu leirmóti með loki. Ef þú átt ekki slíkt mæli ég hiklaust með því að þú fáir þér það – þú munt ekki verða fyrir vonbrigðum.
Þennan rétt er tilvalið að gera á sunnudögum, þó hann sé einfaldur fer nokkur tími í eldamennskuna (aðallega í ofninum en rétturinn er tvo klukkutíma í ofni) og því best að byrja um miðjan dag og svo er eitthvað svolítið sparilegt við flókinn og lokkandi ilminn sem breiðist úr eldhúsinu um allar vistarverur heimilisfólksins.
Kjúklingaleggir, um 1 kg. (stingdu beittum hnífi hér og þar djúpt ofan í kjötið til að það dragi meira bragð í sig)
2 vænar steinseljurætur, sneiddar.
1 gott spergilkálshöfuð, skorið niður
3 stórir, gulir laukar, skornir í stóra bita
1 stórt glas berjasafi eða saft (helst bláberja, við geymum og notum af einum uppáhalds morgundrykk fjölskyldunnar, sem samanstendur af frosnum berjum sem sett eru með köldu vatni í blender og sætt með svolitlu agave sýrópi – bráðholl vítamínsprengja sem allir í fjölskylunni elska).
Góð skvetta af soja sósu.
Góð skvetta af Sweet chili pineapple sósu
Vatnsskvetta.
Hvítvín – smá skvetta.
1 anísstjarna (heil)
3-4 hvítlauksrif, pressuð (skelltu bara hýðinu með í réttinn)
Nokkrir heilir negulnaglar
1/3 rifin múskathneta
Nokkur heil, hvít piparkorn
Nokkur heil, þurrkuð einiber
Sjávarsalt, ágætlega af því
Ferskur, svartur pipar úr kvörn, einnig ágætlega af honum
Ofninn er hitaður í 180-200°C (eftir því hversu heitur hann verður því það er staðreynd að ofnar eru ekki allir eins).
Ekki gleyma að stinga í kjúklingaleggina, það er lykilatriði til að rétturinn njóti sín sem best. Allt hráefnið er sett í gott eldfast leirmót (með loki) og blandað vel saman. Vökvinn á að vera nokkur en þó ekki að hylja meira en til hálfs. Ef þú átt ferskar kryddjurtir, svo sem rósmarín, garðablóðberg eða oreganó, skaltu endilega kasta þeim yfir í lokin (í heilum stilkum). Nú er lokið sett á og mótið sett inn í heitan ofninn í 2 klst. Afbragð er að bera fram með góðu og fersku salati með afhýddu epli, gefur ferskleika á móti kryddsinfóníu réttarins.
Mmmmmmmmmm buon appetito.
Það er svolítill pottréttsfílingur í þesum rétti svo kjarnríkt s-franskt vín er tilvalið, rautt eða hvítt. Bæði vínin frá Chateau Saint Cosme, Little James rautt og Little James hvítt henta prýðilega.







Nýlegt spjall