Við létum Lambrusco frá Lini halda áfram í Vínkeðjunni og þá eru tveir bloggarar búnir að syngja um vínið.

Hallur Magnússon tók því vel, var ekki fyrr búinn að opna flöskuna fyrr en rann á hann ítalskur móður.

Lestu allt bloggið hans Halls um Lambrusco frá Lini

Hallur mælir með víninu í sumarsólinni en líka til að þess að færa ”sól í sinni” á köldum vetrarkvöldum.

Hann viðurkennir að Lambrusco frá Lini sé fyrsta vínið sem honum dettur í hug að geti gengið með heitum blóðmör — og það tökum við undir því rannsóknarsvið fyrirtækisins hefur reynt það einu sinni við mjög góðan árangur.