Search results

Myndir úr frakklandsferð

.
Við Rakel og yngsta afkvæmið Áslaug Birna skruppum til Frakklands í lok september.
Ferðalaginu verður betur líst hér innan skamms en myndirnar eru komnar á flickr.
Myndasýningin hefst í París þar sem við kíktum í óperuna, röltum um og borðuðum góðan mat.
Þaðan tókum við lest til Montpellier og heimsóttum síðan á fjórum dögum vínframleiðendur allt frá S-Frakklandi og norður eftir [...]

Frakklandsferð — Mugison rokkar í Meursault

1.11.2007
Það var frídagur.
Öll franska þjóðin í fríi og þar af leiðandi ég líka.
Kærkomið tækifæri til þess að kanna betur þorp og vínekrur á rólegu tempói.
Það var því ekið af stað, suður af Beaune í þetta skiptið, þar sem hvert vínþorpið tók við af öðru með stuttu millibili við undirleik Mugison. Flottur diskur hjá kallinum sem afmeyjaði svolítið virðuleika [...]

Frakklandsferð – 20 stykki Lucien Le Moine og eitt stykki Romanée Conti

.
31.10.2007
Reis upp á þriðja degi.
Morgunmatur.
Stephan Brocard kom að sækja mig kl. 10.00. Hann er af Brocard fjölskyldunni sem framleiðir vín í Chablis en hefur ákveðið að fara eigin leiðir og stofna negociant fyrirtæki í Búrgúnd. Engin 1er Cru eða Grand Cru ennþá en mjög góð vín af lægri stigum og nokkuð góð kaup. Stephan er ungur [...]

Frakklandsferð — Betri morgunmatur en kvöldmatur

.
30.10.2007
Vaknað snemma til að hitta Moreau feðga kl. 8.00 því þeir áttu báðir erindi annars staðar þennan sama morgun. Sem reyndar hentaði mér vel því ég átti langa keyrslu fyrir höndum.
En fyrst… morgunmatur.
Morgunmatur á svona ferðalögum er kapítuli út af fyrir sig. Þótt bloggarinn gefi sér sjaldnast tíma fyrir svoleiðis lúxus hér heima þá er [...]

Frakklandsferð — Týndur í París (næstum)

.
29.10.2007
Aldís fékk flensu og fluginu seinkaði um 6 tíma þar til Bryndís kom og bjargaði málunum og skilaði okkur á París Charles de Gaulle 18.00. Þá var náð í Hertz bílinn og skundað út í myrkrið og rigninguna. Of seinn, lélegt skyggni og hraðbrautarflækja Parísar ekki til að einfalda málin. Þá var bara að draga [...]