Heimsókn í kjallara konungsins af Amarone
Bloggarinn hefur heiðrað “Konunginn af Amarone” tvisvar sinnum með nærveru sinni.
Romano Dal Forno.
Bæði skiptin voru í kringum vínsýninguna stóru í Veróna, Vinitaly, en það liggur beinast við að kíkja á kallinn í leiðinni því hann býr í nágrenni borgarinnar.
Við fórum ekki á Vinitaly þetta árið en fundum áhugaverða bloggfærslu sem lýsir heimsókn í kjallara konungsins [...]
Átta ný vín frá Ítalíu fara í Vínbúðirnar í dag
Lítil bylting í gangi hér.
Ekki á hverjum degi sem við sendum átta ný vín í Vínbúðirnar. Þessi hersing er afleiðing af heimsókn bloggarans á Vinitaly vínsýninguna í vor (lestu meira um heimsóknina).
Frá Arnaldo Caprai eru tvö ný vín með sama nafni, Anima Umbra rautt og Anima Umbra hvítt, sem ætlað er að fanga anda Úmbría héraðsins eins [...]
Cannubi Boschis 2003 rannsakaður (drukkinn)
.
Það er ekki oft sem hér fjúka tappar af vínum eins og Barolo Cannubi Boschis frá Luciano Sandrone. Í fyrsta lagi er það dýrt og í öðru lagi er upplagið svo lítið að maður hugsar sig tvisvar um áður en ákvörðun er tekin um að rannsaka eina flösku aðeins nánar. Svo er ekki alltaf tilefni eða stemning [...]
Léttklæddasti maðurinn í Veróna — bloggarinn skreppur á Vinitaly 2008
.
Hún er stór.
Vínsýningin sem skiptir mestu máli á Ítalíu fyrir seljendur og kaupendur er án efa hin árlega Vinitaly í Veróna, í byrjun apríl. Bloggarinn var einn af 45.000 erlendum gestum þetta árið en alls mættu 150.000 gestir á sýninguna fyrir utan vínframleiðendurna sjálfa.
Þetta er mikið af fólki. Þótt fjöldinn dreifist á þá 5 daga sem [...]
Vinitaly 2007 – Brennd samloka og Toskanavindlar
Dagur 5, 30. mars.
Eftir að hafa keyrt Rakel á flugvöllinn í Veróna og lagt bílnum aftur í bílskúr hótelsins sem var svo þröngur að það var töluvert átak að koma honum þangað inn – þá hélt ég á sýningarsvæðið. Komst að því að það var hægt að taka rútu rétt við hótelið sem fór beint [...]
Skoðanakönnun á Umani Ronchi miðum
.
Ekki fyrir löngu síðan (lestu bloggið) lagði ég það til að Montepulciano d’Abruzzo frá Umani Ronchi ætti að breyta um miða svo það yrði skiljanlegra, þekkjanlegra og auðseljanlegra. Ég lýsti því yfir að ég myndi stinga upp á þessu við framleiðandann þegar ég hitti hann á Vinitaly vínsýningunni.
Kom í ljós að Umani Ronchi var skrefi á undan mér. Þeir voru [...]
Vinitaly 2007 – Vínsýningin hefst
.
Dagur 4, 29. mars.
Vinitaly vínsýningin stendur í 5 daga, frá 9.00 til 19.00. Það þýðir 50 tíma af léttvínsþambi ef maður ætlar að nýta hverja mínútu. Ef einhver kynni að vera að velta því fyrir sér þá nennti ég nú ekki að hanga þarna allan tímann og … ég spýti hverjum dropa. Annars endist maður ekki [...]
Vinitaly 2007 – Kvöldverður með Caprai
Dagur 3, 28. mars.
Það hefði ekkert verið að því að hanga aðeins lengur á Hótel Steigenberger, skreppa í nudd eða í girnilega sundlaugina sem blasti við þegar við opnuðum gluggann um morguninn. Nú eða rölta um miðbæ Merano. En Veróna beið okkar þannig að við borðuðum morgunmatinn (reyndar eins seint og hægt var, rétt fyrir [...]
Vinitaly 2007 – Diskóbúlla í Dólómítunum
Dagur 2, 27. mars.
7.00 á fætur.
8.00 inn í rútu.
10.00 mætt á Sellaronda skíðasvæðið í Dólómítunum. Veðrið var rjómagott, færið var fyrirtak og umhverfið óviðjafnanlegt. Ekki svo mikið af fólki og því engin bið í lyftur. Eiginlega er ekki hægt að biðja um meira þótt bloggarinn hafði ekki stigið á skíði í 15 ár. Rakel fór [...]
Vinitaly 2007 – Ljósasjóv undir berum himni
.
Dagur 1, 26. mars.
Flug í Keflavík 7.20, millilending í Frankfurt og þaðan til Veróna 18.00.
Vinitaly vínsýningin í Veróna er stærst og elst allra vínsýninga. Ekki hissa kannski að hún skuli vera elst enda liggja allar rætur á endanum til Móður Ítalíu (og reyndar þaðan til Grikklands og Asíu en gleymum því) en að hún sé stærst kom [...]
Lagt af stað á Vinitaly
.
Jæja, þá er komið að því.
Vinitaly vínsýningin í Veróna hefst á fimmtudaginn.
Við Rakel leggjum reyndar í hann eldsnemma í fyrramálið, fljúgum til Frankfurt og þaðan samdægurs til Veróna. Lending í Veróna 18.00, bílaleigubíll sóttur með hraði og síðan brunað beint í norður þar til við komum ti San Michelel Appiano, framleiðandans okkar í Alto Adige [...]
Tillaga að flöskumiða
Ég var að velta því fyrir mér hérna á blogginu fyrir skömmu hvort Orobio Rioja frá Artadi myndi ekki seljast betur ef miðinn væri kaupvænlegri.
Ég velti þessu aftur fyrir mér þegar ég opnaði flösku af Montepulciano d’Abruzzo 2004 frá Umani Ronchi. Vínið kostar aðeins 1.300 kr. og hefur fengist í Vínbúðunum í bráðum ár en ekki selst [...]
Amedei smakkið í Vínskólanum gekk vel — sjáið… myndina
Í gærkvöldi var Amedei súkkulaðinámskeið í Vínskólanum. Mér til aðstoðar voru Dominique sem rekur skólann og Ásgeir Sandholt, einn af okkar færustu bökurum.
Það tókst afar vel, svo vel reyndar að ég gleymdi alveg að taka myndir fyrir utan þessa einu mynd. Ég var meira að segja ekki hálfnaður að stilla upp á borðið þegar hún var [...]
Appiano er 100 ára í ár
.
San Michele Appiano víngerðin á 100 ára afmæli í ár. Afmælisveislan er í lok mars, síðustu dagana fyrir Vinitaly vínsýninguna og er okkur Rakel boðið. Skíði, matur og líklegast eitthvað af víni.
San Michele Appiano er vínsamlag í eigu yfir 300 bænda í sveitinni í kringum bæinn Appiano.
Það er því ólíklegt að við náum að taka í spaðann [...]
Vinitaly vínsýninginn – hér kem ég
Þá er ég búinn að ganga frá flugmiðum og hóteli í Veróna um mánaðarmótin mars/apríl.
Flugmiðarnir höfðust með smá púsli enda engin bein og greið leið niður á smáflugvöllinn í Veróna.
Hótelið var erfiðara. Vínsýningin er vel sótt þannig að öll herbergi fyllast að því er virðist með árs fyrirvara. Ég sendi út um 10 fyrirspurnir í sumar auk þess [...]
