Category Archives: sandhofer
Hugs!
Bloggarinn er hér enn þrátt fyrir mánaðar bloggbindi. Hann hefur meira verið að hugsa en skrifa. Hann er til dæmis ekki ennþá búinn að tilkynna hérna á blogginu þrjú ný vín frá Hubert Sandhofer. Rauðvínið St. Laurent Eisner, ilmsprengjuna Gelber … Continue reading
Filed under austurríki, útsala, frakkland, lífrænt, Michel Guignier, sandhofer, vínbúðirnar
Hvað er að gerast?
Það hefur ekiki heyrst mikið í okkur undanfarið hérna á blogginu þar sem kraftarnir okkar beinast svolítið að Frú Laugu þessa dagana og svo verður eitthvað áfram. Frúin er annars við góða heilsu! Sprúttsalan hefur þó ekki legið niðri á … Continue reading
Filed under bisceglia, d'arenberg, fréttir, frú lauga, lini, saint cosme, sandhofer, val d'oca
Vínkeðjan: Eiríkur Stefán tekur Grüner Veltliner upp á sína arma
Upp á síðkastið höfum við spurt hvern nýjan bloggara sem tekur þátt í Vínkeðjunni hvort hann vill hvítt eða rautt en að öðru leyti er valið á víninu alfarið okkar. Eiríkur Stefán óskaði þannig eftir hvítvíni og létum við hann … Continue reading
Filed under austurríki, dómar, sandhofer, vínkeðjan
Hubert Sandhofer kíkir í heimsókn
Austurríski vínframleiðandinn Hubert Sandhofer var á Íslandi í síðustu viku og kíkti í heimsókn til okkar í höfuðstöðvarnar til að smakka nýjustu vínin. Flest vínanna voru ekki komin á flöskur ennþá og þurfti Hubert að tappa þeim beint úr tanki … Continue reading
Filed under sandhofer, vínsmökkun
Uppskrift: Lax með spergilkáli og baunamauki
Hversdagsmatur þarf ekki að vera hversdagslegur. Þessi hversdagsréttur er svo sparilegur að hann má vel hafa spari líka. Hann uppfyllir allar kröfur upptekinna, barnmargra fjölskyldna, hann er afar einfaldur og fljótlegur, næringarríkur og ljúffengur. Hann er sérstaklega gott að gera … Continue reading
Tvö sérstaklega jólaleg vín
Ef ég væri spurður hvaða rauðvín og hvaða hvítvín úr okkar röðum hentuðu almennt best með jólamatnum þyrfti ég velja vín sem uppfyllir eftirfarandi skilyrði: – Gengur með öllu nema Ris a la mande, fjölhæft – Ömmu þarf að finnast … Continue reading
Filed under d'arenberg, jól, sandhofer
St. Laurent Reserve í fleiri Vinbúðir yfir hátíðarnar
Þemadagar svokallaðir ríkja í Vínbúðunum í desember þar sem lögð er áhersla á vín með villibráð. Vínin á þemadögunum eru pöruð með ákveðnum réttum sem innihalda villibráð og fá sérstaka merkingu í hillunum samkvæmt því. Birgjar fá að tilnefna sjálfir … Continue reading
Filed under dómar, Gestgjafinn, sandhofer, vínbúðirnar
Tvö snertimörk í Gestgjafanum – The Footbolt og St. Laurent Reserve
Mitt í önnum og jafnvel almennri bloggleti gleymdist að færa það til bókar að rauðvínið St. Laurent Reserve 2006 frá Hubert Sandhofer hlaut hina eftirsóttu viðurkenningu Vín mánaðarins í nýlegum Gestgjafa. Snertimark! Þetta kórónar frábæra útkomu Sandhofer vínanna þriggja með … Continue reading
Filed under d'arenberg, dómar, Gestgjafinn, sandhofer
Rósavín með bein í nefinu
. Nýja Sandhofer þríeykið samanstendur af þremur vínum með myndlist Kristínar Gunnlaugsdóttir, hvítvíni, rósavíni og rauðvíni. Í síðasta Gestgjafa fékk hvítvínið Gruner Veltliner 2007 frá Hubert Sandhofer 4 glös og fín meðmæli (lestu dóminn). Í nýjasta Gestgjafanum er röðin komin að … Continue reading
Filed under dómar, Gestgjafinn, rósavín, sandhofer
Matarvænt Grüner Veltliner 2007 í Gestgjafanum
Gestgjafinn fjallar um Grüner Veltliner 2007 í nýjasta tölublaðinu og gefur því flotta einkunn, 4 glös. Í sama blaði er heilsíðugrein um Kristínu Gunnlaugsdóttur og Sandhofer-vínin (bls. 75) en það er einmitt myndlist Kristínar sem prýðir flöskurnar. Greinin klikkir skemtilega … Continue reading
Filed under dómar, Gestgjafinn, myndlist, sandhofer
Viðtal í 24 Stundum í dag vegna íslenskrar myndlistar á vínum frá Sandhofer
. Bloggarinn og Kristín Gunnlaugsdóttir eru í viðtali í dagblaðinu 24 Stundum í dag vegna vínanna frá okkar manni í Austurríki Hubert Sandhofer. Eins og hér hefur áður komið fram eru flöskurnar prýddar myndlist Kristínar og hefur hún áritað fyrstu flöskurnar … Continue reading
Filed under austurríki, sandhofer, viðtal
Biluð strikamerki – St. Laurent Reserve frá Sandhofer komið aftur í Vínbúðirnar
. Það var einhver óheppni að strikamerkin á St. Laurent Reserve frá Sandhofer fóru illa í lesarana í Vínbúðunum og þurftum við að sækja allt saman og setja ný strikamerki á flöskurnar. Okkur þykir miður ef einhver fór fýluferð í … Continue reading
Filed under sandhofer, vínbúðirnar
Hubert Sandhofer í vídeóbloggviðtali
Íslandsvinurinn Hubert Sandhofer var staddur hér á landi í vikunni og við ákváðum að taka upp stutt viðtal í tilefni nýrra vína frá framleiðandanum sem byrja í Vínbúðunum Heiðrúnu og Kringlunni 1. júlí. Meira um vínin síðar en hér er viðtalið. … Continue reading
Hlý orð í Gestgjafanum
Gestgjafinn birtir góð orð í okkar garð í nýjasta blaðinu (3. tbl. 2008). Fyrst ber þar að nefna umfjöllun um Búrgúndarvínsmökkun sem við héldum á Vínbarnum og kynntum nokkur vín frá framleiðendum okkar þaðan. Smelltu hér til að sjá myndir úr smakkinu Smelltu … Continue reading
Filed under búrgúnd, caprai, castello di querceto, christian moreau, dómar, Gestgjafinn, grivot, lucien le moine, sandhofer, ummæli, vín, vincent girardin
Áramótapartývín – freyðivínin okkar í Gestgjafanum
. Góðan daginn, góðan daginn. Hér var að berast Gestgjafi inn um lúgu með góðri umfjöllun um freyðivínin okkar tvö, Francois 1er frá Castello di Querceto sem fær 4 glös af 5 og Frizzando sem fær 3 1/2 glas. Hið … Continue reading
Filed under castello di querceto, dómar, Gestgjafinn, sandhofer
Hinn eini sanni Hátíðarvínlisti Íslands 2007
. Neyðarlína Víns og matar hefur verið rauðglóandi undanfarna daga til að svara spurningum um vín með hátíðarmatnum. Til að létta á starfsfólki í símaveri höfum við ákveðið að taka hann saman aftur — Hátíðarvínlista Íslands 2007 [varist eftirlíkingar]: Manstu ekki neitt … Continue reading
Tvær vínsmakkanir í dag
Bloggarinn verður að skenkja í glös við tvö tækifæri í dag. Hið fyrra er við opnun myndlistarsýningar Kristínar Gunnlaugsdóttur í Turpentine galleríinu í Ingólfsstræti þar sem boðið verður upp á hið skemmtilega Frizzando frá Sandhofer. Það síðara verður í hléi á … Continue reading
Filed under caprai, castello di querceto, d'arenberg, flaugergues, myndlist, sandhofer, tónlist, vínsmökkun
Einn af sumarsmellunum 2007 – Frizzando 2006
. Undir fyrirsögninni “Hvítir sumarsmellir” í Morgunblaðinu fjallar Steingrímur um nokkur góð hvítvín sem honum finnst sérstaklega sumarleg. Hann byrjar á Frizzando 2006 frá Sandhofer, okkar manni í Austurríki. “Það gerist ekki mikið sumarlegra” eins og Steingrímur segir: “FRIZZANDO D’VILLA … Continue reading
Filed under dómar, morgunblaðið, sandhofer
Uppskrift af mangósalati
Sumarsalat fyrir 8 manns. 2 þroskuð mangó 1/2 poki klettasalat 1 haus lamhagasalat 1 lítill poki kasjú hnetur (ósaltaðar) 100g saxaðar döðlur 100g sneyddur parmesan ostur Allt salatið saxað niður og mangóið skorið í smáa teninga. Blanda saman. 10msk ólífuolía … Continue reading
Flugleiðir velja Vín og mat á Business Class vínlistann
Ég er nokkuð ánægður akkúrat núna. Svona næstum eins ánægður og krakkarnir í Langholtsskóla sem unnu Skrekk í gær. Inn um lúguna kom bréf frá Flugleiðum með pöntun fyrir Business Class vínlistann árið 2007. Það eru 8 vín á vínlistanum, fjögur fyrir … Continue reading






