Category Archives: vínbúðirnar
Hin hérumbil árlega haustútsala
Útsalan er farin aftur af stað. Svolítill afsláttur af tíu góðum vínum (þar af eitt grappa) sem væri ekki svo galið að næla sér í fyrir jólin. Mikið neðar var ekki komist í verðum því restin fer að mestu … Continue reading
Filed under útsala, tilboð, vínbúðirnar
Hugs!
Bloggarinn er hér enn þrátt fyrir mánaðar bloggbindi. Hann hefur meira verið að hugsa en skrifa. Hann er til dæmis ekki ennþá búinn að tilkynna hérna á blogginu þrjú ný vín frá Hubert Sandhofer. Rauðvínið St. Laurent Eisner, ilmsprengjuna Gelber … Continue reading
Filed under austurríki, útsala, frakkland, lífrænt, Michel Guignier, sandhofer, vínbúðirnar
Mitt á milli Soave og Valpolicella — Nýr framleiðandi í Vínbúðunum
Vínin frá Ca Rugate eru mætt í hillur Vínbúðanna. Fjögur vín frá hinu þekkta Soave hvítvínssvæði og enn þekktara Valpolicella rauðvínssvæði í hjarta Veneto héraðsins. Rauðvínin Valpolicella Rio Albo 2008 (2.597 kr.) og Ripasso Valpolicella 2007 (3.998 kr.) og hvítvínin Soave San Michele … Continue reading
Filed under vínbúðirnar
Tvíburarnir vilja vera áfram í Vínbúðunum
Öll vín sem hefja REYNSLU í Vínbúðunum hafa eitt ár til að komast í KJARNA þar sem þeim er tryggður staður í a.m.k. ár til viðbótar. Í kjarna fær vínið meiri dreifingu í fleiri Vínbúðir og ef vínið selst virkilega vel … Continue reading
Filed under áskorun, saint cosme, vínbúðirnar
Nýtt á nýju ári
Það eru blikur á lofti. Við erum ekki hætt að endurskoða vínportfólíuna þótt maður fari hægar í sakirnar og varlegar en oft áður. Eins og alltaf munu einhver vín hætta í Vínbúðunum og jafnvel aldrei koma aftur en þá er bara … Continue reading
Filed under caprai, christian moreau, frakkland, romano dal forno, vínbúðirnar, vínsýning
Eitt af þessum vonlausu vínum í Vínbúðunum
Við getum ekki hætt að flytja inn vín sem enginn kaupir. Hverjum öðrum en okkur dytti í hug að flytja inn vín sem kemur frá óþekktum framleiðanda af óþekktu svæði eða með miða sem enginn tekur eftir, nú eða nafni sem … Continue reading
Filed under mourgues du gres, röfl, vínbúðirnar
Tveir nýir framleiðendur í Vínbúðunum
Vín frá tveimur nýjum framleiðendum eru nýkomin í Vínbúðirnar. Fyrst ber að nefna Bisceglia sem hefur aðsetur í Basilicata-héraði á S-Ítalíu og gerir vín þaðan en einnig frá nágrannahéruðum. Þannig er Primitivo 2007 rauðvínið frá Puglia og Falanghina 2008 hvítvínið frá … Continue reading
Filed under ítalía, bisceglia, portúgal, Quintas de Melgaço, vínbúðirnar
Verðhækkanir í Vínbúðunum
Það hefur ekki farið framhjá neinum að verð á víni og öðru áfengi hefur hækkað. Ástæðan er margumrædd hækkun áfengisgjalds. Þetta gerðist hratt. Við fengum föstudaginn til að breyta verðum til Vínbúðanna í samræmi við hækkunina og í dag tóku nýju verðin … Continue reading
Filed under fréttir, vínbúðirnar
Bráðum verður beljunni hleypt út á tún
Þessa dagana erum við með ermar uppbrettar að leggja lokahönd á fyrsta kassavínið sem við flytjum inn. Vanalega leggjum við ekki okkar hendur eða lokahendur á hönnun eða útlit vöru sem við flytjum inn ef endanskilið er samvinnuverkefnið með austurríska vínframleiðandanum Hubert … Continue reading
Filed under ítalía, castello di querceto, vínbúðirnar
Hástökkvari mánaðarins í Vínbúðunum
Í hverjum mánuði fáum við sprúttsalar yfirlit frá ÁTVR yfir sölu með útreiknaðri framlegð fyrir hvert og eitt vín. Listinn skiptist í tvennt, yfir vöru sem er í kjarna annars vegar og hins vegar vöru sem er til reynslu. Þarna … Continue reading
Filed under castello di querceto, fréttir, vínbúðirnar
Nýr framleiðandi: Chateau de Montfaucon
Á mánudaginn koma til landsins ný vín frá Rónarhéraði Frakklands. Þetta verða fyrstu vínin sem við flytjum inn af svokölluðu Côtes du Rhône kyni. Framleiðandinn er Chateau de Montfaucon og komumst við í kynni við hann fyrir um tveimur árum … Continue reading
Filed under vínbúðirnar
Og enn af verðbreytingum…
Það er ekki annað hægt að segja en að starfsmenn Vínbúðanna hafi haft nóg að gera í verðmerkingum síðusta misserið. Fyrst var það hver hækkunin á fætur annarri sem skall á þegar gengið féll og féll og vínkaupmenn þurftu að … Continue reading
Filed under caprai, castello di querceto, fréttir, vínbúðirnar
Hækkun um hundað kall takk fyrir
Svona til að einfalda hlutina þá má segja að hækkun áfengisgjalds í vikunni hafi leitt til 100 kr. hækkunar (miðað við 750ml flösku af léttvíni með meðaláfengisprósentu). Þetta ætla ég ekki að sýna fram á með dæmi. Það yrði frekar … Continue reading
Filed under fréttir, vínbúðirnar
St. Laurent Reserve í fleiri Vinbúðir yfir hátíðarnar
Þemadagar svokallaðir ríkja í Vínbúðunum í desember þar sem lögð er áhersla á vín með villibráð. Vínin á þemadögunum eru pöruð með ákveðnum réttum sem innihalda villibráð og fá sérstaka merkingu í hillunum samkvæmt því. Birgjar fá að tilnefna sjálfir … Continue reading
Filed under dómar, Gestgjafinn, sandhofer, vínbúðirnar
Flest okkar vín á óbreyttum verðum fram yfir jól
Við fengum margar hringingar á föstudaginn varðandi þá miklu hækkun 1. nóvember í Vínbúðunum sem fólk taldi að myndi gerast og hafði farið eins og eldur um sinu um samfélagið. 25% héldu flestir að hækkunin myndi verða og einn hafði heyrt 50%. … Continue reading
Filed under innflutningur, vínbúðirnar
Vín í vanda
Það hefur ekki farið framhjá neinum að innflutningur til Íslands liggur gott sem niðri. Við erum ágætlega birg af þeim vínum sem fást í Vínbúðunum þessa stundina en þetta kemur hugsanlega til með að hafa áhrif á innkomu nýju vínanna sem sérfræðingar … Continue reading
Filed under innflutningur, vangaveltur, vínbúðirnar
Vinbudin.is
Talandi um nýjar vefsíður (sjá bloggið hér fyrir neðan). Það er ástæða til þess að minnast á það að vínbúð allra landsmana, ÁTVR, er búin að opna nýjan vef og ástæða til þess að óska þeim til hamingju því hann … Continue reading
Filed under vínbúðirnar, vefsíður
Átta ný vín frá Ítalíu fara í Vínbúðirnar í dag
Lítil bylting í gangi hér. Ekki á hverjum degi sem við sendum átta ný vín í Vínbúðirnar. Þessi hersing er afleiðing af heimsókn bloggarans á Vinitaly vínsýninguna í vor (lestu meira um heimsóknina). Frá Arnaldo Caprai eru tvö ný vín með … Continue reading
Filed under ítalía, caprai, falesco, fontodi, lini, umani ronchi, vínbúðirnar
Biluð strikamerki – St. Laurent Reserve frá Sandhofer komið aftur í Vínbúðirnar
. Það var einhver óheppni að strikamerkin á St. Laurent Reserve frá Sandhofer fóru illa í lesarana í Vínbúðunum og þurftum við að sækja allt saman og setja ný strikamerki á flöskurnar. Okkur þykir miður ef einhver fór fýluferð í … Continue reading
Filed under sandhofer, vínbúðirnar
Fiskiveisla í Vínbúðunum
. Það er fiskiveisla í Vínbúðunum í apríl. Þar verður ekki boðið upp á úrval fiskirétta beint af grillinu, gestakokka og ferskan krækling ásamt úrvali hvítvína sem hægt er að smakka á staðnum. En þar er hægt að nálgast þennan … Continue reading
Filed under d'arenberg, matur, umani ronchi, vínbúðirnar
Hinn eini sanni Hátíðarvínlisti Íslands 2007
. Neyðarlína Víns og matar hefur verið rauðglóandi undanfarna daga til að svara spurningum um vín með hátíðarmatnum. Til að létta á starfsfólki í símaveri höfum við ákveðið að taka hann saman aftur — Hátíðarvínlista Íslands 2007 [varist eftirlíkingar]: Manstu ekki neitt … Continue reading
Vín á tilboði yfir hátíðarnar
. Eins og vanalega fengum við að tilnefna nokkur vín á sérstakan hátíðarvínlista Vínbúðanna sem gildir til áramóta. Við tilnefndum 5 reynsluvín og fást þau þá ekki bara í Kringlunni og Heiðrúnu næstu vikurnar heldur líka í Smáralind, Eiðistorgi, Skeifunni, Hafnarfirði … Continue reading
Filed under caprai, castello di querceto, d'arenberg, tilboð, vínbúðirnar
Kjarnavínin okkar — uppfærður listi
. Við eigum ennþá fimm vín í kjarna Vínbúðanna sem þýðir að þau fást víðar heldur en bara í Heiðrúnu og Kringlunni. Dreifingin er þó mis mikil. Ég myndi ekki treysta á að þú fyndir þau á Djúpavogi. Chianti Classico … Continue reading
Filed under castello di querceto, d'arenberg, fontodi, umani ronchi, vínbúðirnar
Hjálp óskast við að koma Flaugergues í kjarna
. Það þurfa aðeins að seljast nokkrir tugir flaska í Vínbúðunum af rauðvíninu Chateau de Flaugergues frá S-Frakklandi til þess að það komist í kjarna Vínbúðanna. Ef það nær þeim áfanga er vera þessa í Vínbúðunum a.m.k. ár héðan í frá tryggð auk þess sem … Continue reading
Filed under áskorun, flaugergues, frakkland, vínbúðirnar
Sumarvín í Vínbúðunum
Það standa yfir sumarvíndagar í Vínbúðunum. Við eigum 5 vín þar sem eru á tilboði fram yfir verslunarmannahelgi. Casal di Serra (1.490 kr. í stað 1.590 kr.) er vinsælt hvítvín frá Umani Ronchi í Le Marche héraði á Ítalíu. Það er eingöngu framleitt … Continue reading
Filed under aupilhac, caprai, d'arenberg, flaugergues, tilboð, umani ronchi, vínbúðirnar
Laderas á 14,30 krónur fyrir hvert Parker stig
. Laderas de El Seque 2005 frá Artadi víngerðinni á Spáni fær 90 stig hjá Robert Parker. Laderas de El Seque kostar 1.290 kr. á sérstöku tilboði í Vínbúðunum Heiðrúnu og Kringlunni. Það gera aðeins 14,30 krónur fyrir hvert stig sem Robert Parker gefur … Continue reading
Filed under artadi, dómar, el bulli, robert parker, spánn, tilboð, vínbúðirnar
Ný íslensk bloggsíða sem fjallar um vínin í Vínbúðunum
. Steinar Þór Guðlaugsson fjallar um vínin í Vínbúðunum á nýrri bloggsíðu sinni. Ég rakst á það rétt í þessu þegar ég var að þvælast eitthvað inni á Mbl.is og líst mjög vel á. Meðal fyrstu færslanna eru þrjár vandaðar … Continue reading
Filed under blogg, castello di querceto, d'arenberg, dómar, mourgues du gres, vín, vínbúðirnar
Ítalskir dagar – tvö vín á tilboði
. Í Vínbúðunum standa nú yfir ítalskir dagar. Við erum með tvö vín á afslætti í Vínbúðunum á meðan á dögunum stendur út maí, Vitiano hvítvínið kostar 1.490 kr. í stað 1.590 og Querceto Chianti kostar 1.290 kr. í stað … Continue reading
Filed under ítalía, castello di querceto, falesco, tilboð, vínbúðirnar
Alkinn og áfengisfrumvarpið
. Á mánudaginn fer áfengisfrumvarpið fyrir þingið eina ferðina enn. Held að það sé í fjórða sinn. Þar er mælst til að matvöruverslanir selji létt vín (að 22% styrkleika) en að ÁTVR hafi áfram einkasölu á sterku áfengi. Lestu frumvarpið hér … Continue reading
Filed under vangaveltur, vínbúðirnar
Top 11 söluhæstu vínin í desember
. Hér eru 11 söluhæstu vínin okkar í Vínbúðunum í jólamánuðinum: 1. Fontodi Chianti Classico 2. d’Arenberg The Laughing Magpie 3. Castello di Querceto Chianti Classico Riserva 4. Castello di Querceto Chianti Classico 5. Falesco Vitiano Rosso 6. Umani Ronchi Casal di … Continue reading
Filed under ástralía, ítalía, castello di querceto, d'arenberg, falesco, flaugergues, fontodi, frakkland, mourgues du gres, umani ronchi, vínbúðirnar






