Category Archives: vínkeðjan
Vínkeðjan — Hallur Magnússon “að nánast bresta í ítölsku!”
Við létum Lambrusco frá Lini halda áfram í Vínkeðjunni og þá eru tveir bloggarar búnir að syngja um vínið. Hallur Magnússon tók því vel, var ekki fyrr búinn að opna flöskuna fyrr en rann á hann ítalskur móður. Lestu allt bloggið … Continue reading
Vínkeðjan: Tómasi finnst Lambrusco frá Lini svalandi í vorsólinni
Nýr hlekkur er kominn í Vínkeðjuna. Við ákváðum að breyta til og færa bloggaranum Tómasi Meyer Lambrusco frá Lini frekar en “hefðbundnara” rauðvín eða hvítvín. Fólk hefur ýmsar hugmyndir um Lambrusco, oft byggðar á sætum og djúskenndum minningum um eitthvað … Continue reading
Vínkeðjan: Eiríkur Stefán tekur Grüner Veltliner upp á sína arma
Upp á síðkastið höfum við spurt hvern nýjan bloggara sem tekur þátt í Vínkeðjunni hvort hann vill hvítt eða rautt en að öðru leyti er valið á víninu alfarið okkar. Eiríkur Stefán óskaði þannig eftir hvítvíni og létum við hann … Continue reading
Filed under austurríki, dómar, sandhofer, vínkeðjan
Vínkeðjan: “Stíft og snarpt” — Sigurður Elvar bloggar um Chianti Classico frá Castello di Querceto
Vínkeðjan rataði á dögunum til mannsins með “lyktarskynið eins og íslenska bankakerfið.”, Sigurðs Elvars Þórólfssonar. Sigurður bloggar um Chianti Classico 2007 frá Castello di Querceto og líkir því við sportbíl. Kannski rauðan Ferrari? Lestu bloggið hans Sigurðs um Chianti Classico 2007 … Continue reading
Filed under castello di querceto, chianti classico, dómar, vínkeðjan
Vínkeðjan: Kristján Jónsson lífskúnstner bloggar um Anima Umbra
Það sér ekki bilbug á Vínkeðjunni enda sterkari en stál. Hlekk eftir hlekk, blogg eftir blogg. Keðjan hlekkjaðist á dögunum til Kristjáns Jónssonar lífskúnstners og bloggara sem drakk rauðvínið Anima Umbra alveg eins og á að gera það, í góðra … Continue reading
Vínkeðjan: Guffi og fjölskylda smakka Anima Umbra
Það er ekki hægt að kvarta yfir því að íslenskir bloggarar hafi ekki tekið vínkeðjunni vel. Hver hlekkurinn í keðjunni á eftir öðrum er persónulegur, fyndinn og vel skrifaður. Oft eru meðhjálparar kvaddir til og í þetta sinn var það fjölskyldan með sjálfa … Continue reading
Vínkeðjan — Óttar Völundarson drekkur Anima Umbra í partýi
Meðalmaðurinn Óttar Völundarson bloggaði nýlega um rauðvínið Anima Umbra frá Arnaldo Caprai. Hann prófar það í kjöraðstæðum, í partýi. Óttar kemst reyndar að því að verðsins vegna sé það eilítið of dýrt fyrir meiriháttar partýdrykkju og mælir frekar með því að vínsins … Continue reading
Vínkeðjan: Valinkunnur andans maður og húskerlingin Una smakka Anima Umbra
Vínkeðjan ferðast hratt á milli svarthola og valinkunna andans manna. Hún er keðja fólksins, ekki fræðinganna. Sá valinkunni andans maður Önundur “stakk nefinu langt ofan í stútinn” á Anima Umbra sem er hættuleg iðja og Önundur heppinn að hafa ekki … Continue reading
Vínkeðjan: Anima Umbra lendir í svartholi Trausta
Vínkeðjan er á spretti þessa dagana. Nú síðast lenti hún í svartholi Trausta Þorgeirssonar þar sem hvorki fleiri né færri en sjö “rýnar” skoðuðu vínið en keðjan slapp þaðan aftur óslitin. Önundur hefur tekið áskorun Trausta um að taka við … Continue reading
Vínkeðjan – Helga Þórey bloggar um Anima Umbra
Helga Þórey fékk nýja rauðvínið frá Arnaldo Caprai, Anima Umra, og hefur nýlokið að fjalla um það á blogginu sínu. Smakkfélaginn var enginn annar en móðir hennar, Anna Rós, og saman hafa þær varpað fram skemmtilegri lýsingu á víninu. Eiginlega … Continue reading
Vínkeðjan: Unnur María bloggar um Montefalco
Þá er næsti hlekkur kominn í vínkeðjuna. Unnur María var ánægð með Montefalco og ekki spillti fyrir að framleiðandinn Arnaldo Caprai hafði hlotið viðurkenningu frá Slow Food samtökunum á Ítalíu fyrir gæði vínanna því Unnur hefur “snobbað alveg agalega fyrir öllu því … Continue reading
Vínkeðjan: Þórdís bloggar um Grecante
Góðan daginn. Hún Þórdís íslenskufræðingur hélt áfram með vínkeðjuna okkar og fjallaði um hvítvínið Grecante frá Arnaldo Caprai. Lestu hvað hún segir um Grecante Þórdísi fannst vínið “ilma dásamlega í glasinu” og “frískandi, þurrt og mjög bragðgott” en elskhuginn fann … Continue reading
Vínkeðjan: Hr. Vídalín bloggar um Montefalco
Sá nafngóði maður Arngrímur Vídalín bloggar um rauðvínið okkar Montefalco. Hann prófaði það bæði kælt og við stofuhita, með mat og án. Það vakti með honum fortíðarþrá og varð til þess að hann kveikti á kertum og sá furðulegar, nostalgískar … Continue reading
Vínkeðjan: Sigurlín Bjarney bloggar um Montefalco
Sigurlín Bjarney bloggar um Montefalco sem hún smakkaði á meðan hún horfði á Kiljuna. Góð blanda það. Lestu hvort henni finnst vínið sætt eða súrt Hún skorar á Arngrím Vídalín sem hefur tekið áskoruninni. Vínkeðjan heldur för sinni áfram um ljóðheima.
Vínkeðjan – Davíð Stefánsson yrkir um Vatnsfall Dauðans
Sum vín eru þannig að maður veit ekki hvað maður á að segja. Þá yrkir maður ljóð. Þótt Davíð Stefánsson, ljóðskáld, kalli reyndar ekki sjálft vínið Montefalco Rosso “Vatnsfall Dauðans” þá notar hann þessi sterku orð í stuttu en hnitmiðuðu ljóði sínu … Continue reading
Vínkeðjan – Þorri bloggar um The Footbolt
. Þá er fyrsti hlekkur vínkeðjunnar á þessu nýja ári staðfestur. Lestu bloggið hans Þorra um The Footbolt Þorri finnur m.a. eucalyptus, lakkrís og berjailm af víninu. The Footbolt hefur nú farið í gegnum fyrstu 11 hlekki í vínkeðjunni og … Continue reading
Filed under d'arenberg, dómar, vínkeðjan
Vínkeðjan — Sigurður bloggar um The Footbolt
Vínkeðjan er heldur betur á góðri siglingu. Nýr hlekkur var að bætast við. Sigurður bloggaði um The Footbolt í gær og verður að segjast að vínkeðjufærslurnar eru orðnar hver annarri glæsilegri. Lestu hér hvað honum finnst um The Footbolt Smelltu … Continue reading
Filed under blogg, d'arenberg, dómar, vínkeðjan
Vínkeðjan — Footbolt með hálfum Huga
. Hugi var að enda við að blogga um The Footbolt. Þar með kom nýr hlekkur í vínkeðjuna sem er búin að lengjast smám saman síðan hún byrjaði í febrúar á þessu ári. Lestu hvað Huga finnst um The Footbolt Þetta er ansi … Continue reading
Filed under blogg, d'arenberg, dómar, vínkeðjan
Vínkeðjan – Don Pedro bloggar um The Footbolt (aftur)
Vínkeðjan rann aftur af stað eftir sumarfrí og það heldur mjúklega. Don Pedro hafði reyndar fjallað um The Footbolt fyrr í sumar þegar flaskan reyndist skemmd og fannst mér ómögulegt annað en að hann fengi heilbrigt eintak. Því tók hann … Continue reading
Filed under d'arenberg, dómar, vínkeðjan
Vínkeðjan heldur til Svíþjóðar – Don Pedro bloggar um The Footbolt
. Don Pedro fór alla leið til Svíþjóðar til að leita uppi kjöraðstæður til þess að smakka The Footbolt. Hér er hægt að lesa hvað honum finnst Don Pedro á bestu þakkir skilið fyrir að sinna þessu verkefni af svona … Continue reading
Filed under d'arenberg, dómar, vínkeðjan
Vínkeðjan – Guðmundur bloggar um The Footbolt
. Guðmundur fjallar um The Footbolt á blogginu sínu í dag. Hann drakk það yfir Júróvisjón og miðað við hvernig okkur gekk hefði ég átt að láta hann hafa tvær flöskur en ekki eina. Hann fjallar skemmtilega um það, bæði í … Continue reading
Filed under blogg, d'arenberg, dómar, vínkeðjan
Vínkeðjan — Lovísa bloggar um The Footbolt
. Eftir smá hlé heldur vínkeðjan áfram. Lovísa fjallar um The Footbolt á blogginu sínu í dag. Hún mælir með því og langar að kaupa það aftur. Eiginlega er ekki hægt að biðja um betri dóm en það. Henni finnst … Continue reading
Filed under d'arenberg, dómar, vínkeðjan
Vínkeðjan — G. Pétur fjallar um The Footbolt
. Vínkeðjan er komin á flug. Það tók G. Pétur ekki langan tíma að vippa einni góðri umfjöllun um The Footbolt á vefsíðu sinni. Takk fyrir þetta G. Pétur. Lestu hvað G. Pétur segir um The Footbolt Vínið kom honum … Continue reading
Filed under blogg, d'arenberg, dómar, vínkeðjan
Vínkeðjan — Elísabet fjallar um The Footbolt
Elísabet tók vínkeðjuáskoruninni og fjallaði um The Footbolt á bloggsíðunni sinni. Lestu umfjöllun hennar undir fyrirsögninni ”Vínrauði boltinn hittir í mark”. Hún skorar á G. Pétur til að halda keðjunni áfram og fjalla um vínið og hefur hann tekið áskoruninni.
Filed under blogg, d'arenberg, dómar, vínkeðjan
Vínkeðjan: Linda bloggar um The Footbolt
Vínkeðjan heldur áfram. Hildigunnur byrjaði á að fjalla um The Footbolt 2003 á blogginu sínu og skoraði á Lindu til að fjalla um sama vín. Linda er búin að smakka – lestu hvað henni fannst. Linda smakkar það kannski aftur í … Continue reading
Filed under blogg, d'arenberg, dómar, vínkeðjan
Vínkeðjan fer af stað – Hildigunnur byrjar
. Þá er það farið af stað, vínkeðjubloggið Það virkar þannig að bloggari skrifar um eitthvert vín sem við gefum honum og skorar svo á næsta bloggara til að taka við. Við gefum þá þeim bloggari flösku, hann skorar á … Continue reading
Filed under blogg, d'arenberg, dómar, vínkeðjan






